top of page
Afhverju Ísland?
Rannsóknarspurningin okkar var þessi: Hver er ástæðan að Ísland skyldi vera fyrst allra þjóða til að kjósa kvenkyns forseta?
Við skoðuðum kvennabaráttuna á Íslandi því án hennar hefði engin kona komist í framboð. Kvennafrídagurinn höldum við að hafi hjálpað Vigdísi hvað mest. Sá dagur sýndi körlum jafnt sem konum hve mikilvægar þær eru á heimilum og vinnustöðum. Það var vegna þessa dags að rætt var um konu í forsetaframboð.
Það hjálpaði einnig hve landið var lítið, því hér þekkja nánast allir alla og sérstaklega á þessum tíma var meiri nánd milli frambjóðenda og kjósenda. Almenningur vissi hver Vigdís var.
Vigdís sjálf er að sjálfsögðu sú sem þjóðin kaus. Hún er menntakona, ópólitísk, vel mælsk og nær til almennings. Niðurstöðurnar úr kosningunum sýndu að hún þurfti að berjast fyrir embættinu og þó að hún sé kona hafi henni ekki verið gefin henni öll atkvæðin heldur var hún kosin vegna þess að hún er Vigdís.
bottom of page